Hvað er femínismi? |
,,Femínismi er samheiti yfir ýmsar pólitískar og hugmyndafræðilegar stefnur, þar sem sóst er eftir og barist fyrir jafnrétti kynjanna í víðum skilningi. Meðal þess sem greinir á eru mismunandi skoðanir á því hvað ójafnrétti er, hvernig það lýsir sér og hvernig skuli unnið gegn því. Meðal algengra baráttumála femínista eru barátta fyrir jöfnum launum karla og kvenna, barátta gegn mansali, vændi, útlitsdýrkun og svonefndri „klámvæðingu“ samfélagsins, barátta fyrir rétti til fóstureyðinga og rétti kvenna til menntunar, atvinnu og annarra tækifæra til jafns við karla og barátta fyrir jöfnum áhrifum kynjanna í stjórnmálum og viðskiptum" (www.wikipedia.is).
En femínismi er ekki bara ein skoðun. "Femínismi getur verið lífskoðun, baráttuhreyfing, fræðasvið, kenningar, þekkingarfræði og pólitík, svo að fátt eitt sé nefnt. Áherslan á þessi mismunandi svið hefur verið breytileg í tímans rás" (sjá Vísindavef HÍ).
"Að vera kona er að ganga í of litlum skóm. Að vera femínisti er að skilja ástæðuna fyrir því og fræða aðra um að það eru ekki fæturnir sem eru of stórir heldur skórnir sem eru of litlir" (Píkutorfan, bls. 90).
Hvað er að vera femínisti?
Femínistafélag Íslands skilgreinir femínista svona:
„Femínisti er karl eða kona sem veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð og vill gera eitthvað í því.“
„Femínisti er karl eða kona sem veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð og vill gera eitthvað í því.“
Jón Þór Lemery
10. bekkur A
Laugalækjarskóli @2017
10. bekkur A
Laugalækjarskóli @2017