Í lokaverkefni mínu í Laugalækjarskóla ákvað ég að fjalla um femínisma. Ástæðan er sú að ég hafði áhuga á að vita hver afstaða fólks var til femínisma. Þannig að ég kannaði hvort fólk væri með eða á móti nútímafemínisma, eða bara hvorugt.
Spurningakönnun |
|
Femínismi er ,,hot topic" (viðkvæmt og mikið rætt málefni) á Íslandi í dag. Það er mikill ágreiningur um það. Ég gerði spurningakönnun því ég vildi vita hversu margir myndu segja að þeir væru femínistar eða ekki (andfemínistar). Ég vildi sjá hvort svörin væru eins og kemur fram t.d. í alþjóðlegum könnunum.
Í könnuninni voru 10 spurningar. Fyrst var spurt um kyn og aldur og síðan um afstöðu.
Hvernig er jafnrétti kynjanna í heiminum í dag?
JafnréttiskvarðinnÁrið 2006 gaf World Economic Forum í fyrsta sinn út tölfræðiskýrslu um mun á milli kynjanna í 145 löndum. Þau bjuggu til mælikvarða (Global Gender Gap Index) á jafnrétti kynjanna sem byggir á mörgum atriðum, til dæmis launamun, lífslíkum og fjölda þingmanna sem eru konur. Jafnrétti er mælt á skalanum 0-1. Ísland er með mesta jafnréttið árið 2016 og Pakistan með minnsta.
|
Jafnrétti eftir löndumGræni liturinn merkir lönd með mesta jafnréttið. Meðal annars eru Norðurlöndin mjög græn, sérstaklega Ísland en þar er mesta jafnréttið í heiminum miðað við þennan kvarða.
|
Hlutfall kvenkyns þingmannaÞað er áhugavert að sjá hvar flestu kvenkyns þingmennirnir eru. Inter-Parliamentary Union er með þessar upplýsingar og sýnir prósentuhlutfall kvenkyns þingmanna. Rwanda er efst í röðinni en hlutfall kvenna þar er 52%.
|
Fólk í heiminum sem skilgreinir sig sem femínista
World Economic Forum gerir kannanir á því hvort fólk skilgreini sig sem femínista í mörgum löndum í heiminum. Í könnuninni 2016 eru 17% manns sem skilgreina sig sem femínista, 19% konur og 14% karlar. Þetta er allt öðruvísi í minni könnun en þar segja 68,9% að þeir séu femínistar, 64,1% konur og 45,7% karlar.
|
Það er samt svo athyglisvert að lesa töfluna hérna hægra megin því flestir karlkynsfemínistar eru á Ítalíu og í Argentínu. Það er líka áhugavert að í Póllandi eru fleiri karlar (21%) en konur (17%) sem eru femínistar.
Kannski eru það fordómar hjá okkur að finnast þetta skrýtnar niðurstöður? |